Þróttur með stórsigur á meðan Reynir féll – Víðismenn í góðri stöðu fyrir lokaátökin
Hafnamenn unnu fyrri undanúrslitaleikinn í fimmtu deild
Línur eru teknar að skýrast í flestur deildum á lokametrum Íslandsmótsins í knattspyrnu en það er ljóst að Suðurnesjaliðin Reynir og RB eru bæði fallin. Toppbaráttan er hins vegar hörð hjá nokkrum liðum. Staða karlaliðs Keflavíkur batnaði í gær þegar Fjölnismenn töpuðu óvænt fyrir Gróttu og Keflavík því einu stigi á eftir toppliði ÍBV þegar tvær umferðir eru óleiknar.
Þróttarar eru harðákveðnir í að blanda sér í baráttuna um sæti í Lengjudeildinni að ári en þeir geta stigið stórt skref í þá átt um næstu helgi þegar þeir mæta Völsungi. Einu stigi munar á liðunum sem eru í öðru og þriðja sæti deildarinnar.
Í þriðju deild eru Víðismenn í góðri stöðu og sitja í öðru sæti eftir sigur á Sindra.
RB hefur ekki átt erindi sem erfiði í fjórðu deildina í sumar og er fallið.
Hafnir gætu tryggt sér sæti í fjórðu deild að ári en Hafnamenn unnu fyrri undanúrslitaviðureignina gegn Mídas í gær.
Þróttur - KF 5:0
Það var mikið um að vera hjá knattspyrnufólki í gær en í annarri deild unnu Þróttarar stórsigur á KF og eru í þriðja sæti, einu stigi á eftir Völsungi en þessi tvö lið mætast á Húsavík um næstu helgi.
Mörk: Haukur Darri Pálsson (8' og 90'+1), Haukur Darri Pálsson (14'), Guðni Sigþórsson (19') og Jóhann Þór Arnarsson (28').
Fleiri myndir Helga Þórs eru í myndasafni neðst á síðunni.
Reynir - Haukar 0:0
Þrátt fyrir ágætis færi var ekkert mark skorað og Reynismenn eru því fallnir og koma til með að leika í þriðju deild að ári.
Sindri - Víðir 0:2
Víðismenn gerðu góða ferð til Hafnar í gær og lönduðu mikilvægum sigri sem heldur þeim í öðru sæti deildarinnar þegar tvær umferðir eru eftir. Á sama tíma töpuðu helstu keppinautar þeirra, Árbær, stigum þegar þeir gerðu jafntefli við Augnablik en Árbær og Víðir voru jöfn að stigum fyrir umferðina.
Mörk: Paolo Gratton (56') og Haraldur Smári Ingason (61').
Skallagrímur - RB 5:2
RB leiddi 2:1 í hálfleik en leikur þeirra hrundi í seinni hálfleik og heimamenn skoruðu fjögur mörk.
Mörk RB: Makhtar Sangue Diop (366') og Paul Kampely Sylva (45'+.).
Hafnir - Mídas 3:0
Hafnamenn unnu góðan sigur á Mídas í miklum baráttuleik í undanúrslitum fimmtu deidar karla í gær. Hafnir og Mídas mætast í seinni leiknum næstkomandi laugardag og eiga því ágætis veganesti fyrir þann leik.
Mörk: Jökull Máni Jakobsson (13') og Max William Leitch (53' og 78').