Þróttur lá í Vogunum
Haukamenn unnu mikilvægan sigur í baráttunni um sæti í úrslitakeppni 1. deildar karla í körfuknattleik í kvöld þegar liðið sigraði Þrótt í Vogum 70-68 eftir að heimamenn höfðu leitt í hálfleik 41-35.
Þróttur leiddi með 11 stigum eftir þriðja leikhluta en Haukamenn skoruðu 13 stig í lokaleikhlutanum en Þróttarar ekkert.
VF-mynd: - Stefán Þór Borgþórsson - Þorsteinn Kristinsson Þróttari var með bros á vör eftir þrjá leikhluta en arfaslakur fjórði leikhluti varð Þrótti að falli.