Föstudagur 18. janúar 2008 kl. 22:11
Þróttur lá fyrir Vestan
Botnlið Þróttar í Vogum í 1. deild karla í körfuknattleik mátti í kvöld sætta sig við 20 stiga ósigur gegn KFÍ á Ísafirði.
Lokatölur leiksins voru 117-97 KFÍ í vil.
Eftir leik kvöldsins er Þróttur enn á botni 1. deildar með 2 stig en KFÍ hefur 10 stig með sigrinum.