Þróttur hættir við unglingalandsmótið 2012
Forsvarsmenn Ungmennafélagsins Þróttar í Vogum hafa ákveðið sækja ekki um mótshaldið vegna unglingalandsmóts UMFÍ 2012. Undirbúningur vegna umsóknarinnar hafði staðið yfir um nokkurt skeið en Þróttur hugðist halda mótið á 80 ára afmæli félagsins.
„Hugmynd sú varð að engu er formaður UMFÍ tilkynnti Þrótti eftir fund með fjárlaganefnd ríkisins að ríkið komi ekki til með að styrkja sveitarfélög til framkvæmda við uppbyggingu íþróttamannvirkja á þessu ári. Ákvörðun stjórnar Þróttar er því sú að draga umsókn um mótshald til baka og gera ekki kröfu á sveitarfélagið um að auka fjármagn til framkvæmda við íþróttasvæði umfram það sem nú þegar hefur verið ákveðið,“ segir í tilkynningu frá félaginu sem birt er á heimasíðu bæjarfélagsins.
---
Ljósmynd/Oddgeir Karlsson - Horft yfir Íþróttasvæðið í Vogum.