Þróttmikið starf hjá Nes í vetur
Vetrarstarfið hjá Íþróttafélaginu Nes er komið á fulla ferð eftir sumarfrí. Starfið hófst 6. September og er æft fjóra daga vikunnar. Æft er í tveimur aldurshópum, eldri og yngri, og æfa á milli 60 og 70 einstaklingar hjá félaginu. Boðið er upp á boccia, sund, knattleiki og frjálsar íþróttir eins og undanfarna vetur og fara æfingar fram í íþróttahúsinu í Heiðarskóla og íþróttahúsinu í Grindavík.
Strax í byrjun september var haldið knattspyrnumót SO á Selfossi á vegum Íþróttasambands Fatlaðra og urðu Nesarar í 2. sæti í því móti.
Jóhann R. Kristjánsson keppti í borðtennis á Ólympíumót fatlaðra í Aþenu í september. Það er frábær árangur hjá Jóhanni að komast á Ólympíumótið og eru Nesarar mjög stoltir af sínum manni. Í framhaldi af þessum árangri Jóhanns verða settar upp borðtennisæfingar á vegum félagsins og er verið að ganga frá æfingahúsnæði fyrir þá starfsemi.Laugardaginn 2. okt. var haldið Haustmót ÍF í frjálsum íþróttum og sendi Nes 9 keppendur á mótið. Keppt var í 100m hlaupi, kúluvarpi, langstökki, spjótkasti og kringlukasti karla og kvenna. Mótið gekk mjög vel og átti Nes mann á verðlaunapallinn í öllum greinum og oft tvo og jafnvel þrjá.
Þessa dagana er verið að undirbúa Íslandsmót í boccia einstaklingskeppni sem fram fer á Sauðárkróki 22. – 23. október nk. og er mikill spenningur í liðinu. Heimasíða Nes er: www.nessport.is þar er að mikið af myndefni o.fl. frá starfi félagsins.
Mynd 1: Keppendur Nes á haustmóti ÍF, Mynd 2: Nesarar hirtu öll verðlaunin í spjótkastkeppninni