Þróttarar unnu sinn fyrsta sigur í sumar
Þróttur V. vann sterkan 2:0-útisigur á Vestra um helgina. Vegna meiðsla Andra Hrafns Sigurðssonar í liði Þróttar undir lokin voru 20 mínútur í uppbótartíma. Staðan var markalaus þegar í uppbótartímann var komið en þá skoruðu Þróttarar tvö mörk.
Ingvar Ásbjörn Ingvarsson kom Þrótti yfir á 12. mínútu uppbótartímans og átta mínútum síðar skoraði Pape Mamadou Faye og þar við sat. Þróttur er með fimm stig og Vestri með sex stig.
Víðismenn heimsóttu Selfoss í algjörum toppslag og fengu 5-1 skell eftir að staðan var 1-1 í hálfleik. Nathan Ward jafnaði leikinn fyrir Víðismenn. Víðir eru með sjö stig eftir fjóra leiki og Selfyssingar eru á toppnum með níu stig.
Reynir Sandgerði mætti Kórdrengjum á útivelli og endaði leikurinn með markalausu jafntefli.