Þróttarar sýndu klærnar
Suðurnesjaliðin Þróttur, Njarðvík og Reynir léku öll í 2. deild karla í knattspyrnu í gær. Reynir og Þróttur unnu sína leiki á meðan Njarðvík slapp með jafntefli. Víðismenn gerðu jafntefli við ÍH í 3. deildinni og sitja í sjötta sæti.
ÍR - Þróttur 1:5
Þróttur hafði gert tvö jafntefli fyrir leik þriðju umferðar en landaði fyrsta sigrinum í Breiðholti í gær.
Þróttarar komust yfir á 7. mínútu með marki frá Rubén Lozano Ibancos. ÍR-ingar misnotuðu víti en Þróttarar urðu svo fyrir því óhappi skömmu síðar að skora í eigið mark (29').
Það var því jafnt í hálfleik en Þróttarar sýndu heldur betur á sér klærnar í síðari hálfleik og gengu frá ÍR með fjórum mörkum (Viktor Smári Segatta (66'), Sigurður Gísli Snorrason (69'), sjálfsmark (77') og Rubén Lozano Ibancos (85')).

Reynir - Kári 2:1
Reynir tók á móti Skagamönnunum í Kára í gær og höfðu betur í hörkuviðureign. Reynismenn hafa farið virkilega vel af stað í deildinni í ár og sitja nú í næstefsta sæti.
Kári komst yfir í leiknum eftir um hálftíma leik (33') en Kristófer Páll Viðarsson jafnaði fyrir Reynismenn í uppbótartíma fyrri hálfleiks (45'+3).
Þegar komið var fram í uppbótartíma síðari hálfleiks skoraði Hörður Sveinsson sigurmarkið (90'+3).
Njarðvík - KV 1:1
Njarðvíkingar hafa ekki farið vel af stað í ár og á því varð engin breyting í gær þegar þeir tóku á móti KV.
Njarðvík lenti undir á 77. mínútu og það var komið á sjöttu mínútu uppbótartíma þegar þeir loks náðu jöfnunarmarkinu. Þar var að verki Andri Fannar Freysson (90'+6) eftir að Njarðvíkingar höfðu sótt linnulaust að KV á lokamínútunum.


ÍH - Víðir 1:1
Víðismenn gerðu jafntefli við ÍH í 3. deild karla í gær. Víðir komst yfir á 38. mínútu með marki Sigurður Karls Gunnarssonar en ÍH jafnaði í síðari hálfleik (54').
Víðir situr í sjötta sæti deildarinnar með fjögur stig eftir þrjár umferðir.