Þróttarar jöfnuðu í uppbótartíma og Víðismenn úr fallsæti
- Magnús Þórir skoraði þrennu í sigri Reynismanna
Fjarðabyggð og Þróttur Vogum gerðu 2-2 jafntefli á Eskjuvelli sl. laugardag en öll mörkin komu í síðari hálfleik. Viktor Smári Segatta kom Þrótturum yfir en Nikola Stojanovic og Aleksander Stojkovic breyttu stöðunni í 2-1 fyrir Fjarðabyggð þegar skammt var eftir en Hrólfur Sveinsson jafnaði hins vegar leikinn á síðustu mínútunni fyrir Þróttara. Þróttarar eru nú í fimmta sæti 2. deildar og aðeins þremur stigum frá toppliðunum.
Andri Gíslason skoraði eina mark Víðismanna í 1-0 sigri á Leikni frá Fáskrúðsfirði í 2. deild karla en leikurinn fór einnig fram sl. laugardag. Sigurmark leiksins kom á 15. mínútu en með því eru Víðismenn komnir með níu stig og í tíunda sæti. Tindastóll er nú í næst neðsta sæti með sjö stig í 2. deildinni.
Reynir sigraði Mídas sannfærandi á útivelli á miðvikudaginn í síðustu viku og urðu lokatölur leiksins 1-5. Reynir er á toppi B- riðils 4. deildar, Magnús Þórir Matthíasson skoraði þrennu í fyrri hálfleik fyrir Reynismenn.
Næstu leikir:
Huginn - Þróttur 21. júlí
Höttur - Víðir 21. júlí
Reynir - SR 18. júlí