Þróttarar flagga í dag
Í dag, Þriðjudaginn 30. júlí ætla Þróttarar í Vogum að halda uppá fánadag félagsins. Þar verður tónlist og frábær stemmning á knattspyrnusvæði Vogamanna. Boðið verður uppá andlitsmálningu og einnig verða Þróttarafánar til sölu. Grillaðar verða pylsur en lið Þróttar mun svo mæta liði Árborgar í 11. umferð 4. deildar klukkan 20:00.
Þróttarar vilja hvetja alla til að mæta og taka góða skapið með sér, þar sem dagurinn hefur fengið nafnið fánadagur félagsins þá eru allir hvattir til að mæta og vera appelsínugulir en einnig verður brekkan vel appelsínugul þegar leikurinn hefst um kvöldið.