Þróttarar fengu aðra góða heimsókn
Ólína Viðarsdóttir hélt fyrirlestur fyrir stelpurnar
Knattspyrnudeild Þróttar bauð öllum stelpum 13. ára og eldri á fyrirlestur hjá Ólínu Viðarsdóttur á dögunum en Ólína á glæstan feril að baki sem knattspyrnukona en hún hefur spilað með Íslandi á tveimur stórmótum auk þess að hafa orðið bæði Íslands- og bikarmeistari. Ekki má gleyma Chelsea ævintýri hennar þar sem hún lauk glæstum atvinnumannaferli sínum.
Ólína Viðarsdóttir hitti stúlkur í 4.og 5. flokk kvenna hjá Þrótti auk stelpna sem æfa fótbolta annarstaðar en búa í sveitarfélaginu. Ólína fór yfir þau atriði sem hún telur að séu lykillinn að árangri fyrir stelpur sem vilja ná lengra í fótbolta.
•Andlegur undirbúningur og sjálfstraust.
•Líkamlegt form og lykilatriði fyrir hverja stöðu á vellinum.
•Liðsheild og gleði.
Fyrirlesturinn var uppbyggilegur, skemmtilegur og fræðandi og á að opna augu stelpna fyrir þeim endalausu tækifærum sem fylgja því að vera í fótbolta.