Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Íþróttir

Þróttarar efla starfið og færa út kvíarnar
Laugardagur 18. apríl 2015 kl. 22:13

Þróttarar efla starfið og færa út kvíarnar

Frítt unglingadómaranámskeið í boði

Unglingadómaranámskeið verður haldið hjá Þrótti í Íþróttamiðstöðinni Vogum þriðjudaginn 21. apríl kl. 18:00.
Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við Þrótt Vogum og hefst kl. 18:00. Námskeiðið stendur í um tvær og hálfa klukkustund og er öllum opið sem verða 15 ára á árinu og eldri.

Á námskeiðinu er lögð aðaláhersla á knattspyrnulögin en auk þess verður einnig farið yfir ýmis konar kynningarefni, fræðsluefni, skýringar og skýringarmyndir. Námskeiðinu lýkur með skriflegu prófi.
Námskeiðið er ókeypis.

Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt á að dæma í 4. flokki og neðar ásamt því að vera aðstoðardómari upp í 2. flokk.
 
Skráning er hafin á [email protected] eða marteinn@throttur.net
Public deli
Public deli