Þróttarakaffi á laugardögum í vetur
Þróttur í Vogum ætlar að efla félagsstarfið enn frekar í vetur og veram með opið hús í Íþróttamiðstöðinni Vogum alla laugardaga í vetur milli kl. 11 og 13. Þangað geta allir komið í kaffi, hitt gamla félaga og kynnst nýjum úr hópi Þróttara.
„Við byrjum formlega næsta laugardag 6. október. Enn fremur geta allir tekið þátt í innanfélagsleik okkar í getraunum og sýnt snilli sína á því sviði. Kunnir þú ekki að tippa þá eru sérfræðingar okkar boðnir og búnir að aðstoða þig. Hafir þú ekki áhuga á að tippa er það líka í góðu lagi svo framarlega sem þú mætir með góða skapið,“ segir í tilkynningu frá Þrótti.