Þröstur Leó leikur með Tindastól á næsta tímabili
Keflvíkingar hafa orðið fyrir frekari blóðtöku úr herbúðum sínum í körfuknattleiksliði karla. Nú er ljóst að Þröstur Leó Jóhannsson mun ekki leika með liðinu á næstu leiktíð en hann mun ganga til liðs við Tindastól á Sauðárkróki. Eins og flestum er kunnugt mun miðherjinn sterki Sigurður Gunnar Þorsteinsson heldur ekki leika áfram með liðinu.
Í samtali við Karfan.is sagði Þröstur að hann liti ekki á þetta sem skref niður á við heldur sem skref í aðra átt. „Mér lýst vel á þjálfarann og það er metnaður í honum og hann seldi mér þetta aðalega. Svo býr bróðir minn á Króknum þannig að allar aðstæður fyrir mig persónulega ættu að vera fínar. Svo þekki ég ágætlega þessa stráka þarna uppfrá þannig að þetta mun vonandi bara bæta minn leik og jafnvel breyta honum til hins betra."