Þrjú Suðurnesjalið í 16-liða úrslit VISA bikars
Reynir, Grindavík og Víðir tryggðu sér sæti í 16-liða úrslitum VISA-bikars karla í kvöld.
Víðir vann Þrótt úr Vogum í Suðurnesjaslag umferðarinnar, 1-0. á Garðsvelli og var það Sigurður Elíasson sem skoraði markið um miðjan fyrri hálfleikinn með góðu skoti úr þröngu færi við endalínuna á vinstri kanti.
Þá vann Grindavík sigur á Hetti frá Egilsstöðum, 2-1, á heimavelli sínum. Páll Guðmundsson opnaði leikinn strax á 2. mínútu með góðu marki, en þetta var fyrsta mark Grindvíkinga á heimavelli sínum í sumar. Tomasz Stolpa bætti öðru við á 52. mínútu eftir fyrirgjöf Orra Freys Hjaltalín og Hattarmenn klóruðu í bakkann með einu marki á lokamínútum leiksins. Þar var að verki Aljosa Gluhovic.
Reynismenn voru lengi að brjóta gestina frá Höfn á bak aftur en höfðu að lokum öruggan sigur á Sindra, 3-0, á Sparisjóðsvellinum. Fyrsta markið kom eftir tæpan klukkutíma og var þar að verki Jóhann Magni Jóhannsson, sem skoraði af stuttu færi. Eftir það var ekki spurning um það hver færi með sigur af hólmi því Sindramenn sáu sjálfir um að skora annað markið, sem kom eftir hornspyrnu frá Guðmundi G. Gunnarssyni.
Varnarmaðurinn Novak Popovic skoraði svo þriðja og síðasta markið í sínum fyrsta leik fyrir félagið. Var nokkur rangstöðulykt af markinu, en dómarinn sá ekkert athugavert við það og því fékk það að standa.
Keflvíkingar geta slegist í hóp með grannliðum sínum á morgun þegar þeir mæta Stjörnunni á Sparisjóðsvellinum í Keflavík.
VF-myndir/Þorgils - Úr leikjum kvöldsins