Þrjú Íslandsmet hjá ÍRB á metamótum
Í lok árs þá er það hefð að halda mót til að gefa sundmönnum tækifæri á því að reyna við innanfélagsmet eða aldursflokkamet í sínum greinum áður en þau fara yfir í næsta aldursflokk við áramót. ÍRB hélt tvö mót í Vatnaveröldinni í vikunni, annað í 25m laug og hitt í 50m laug sem gáfu af sér þrjú ný íslensk aldursflokkamet.
Á miðvikudagskvöldið þá var mótið í 25m laug. Sveit ÍRB setti þá Íslandsmet í flokki stúlkna 15-17 ára í 4 x 100m skriðsundi. Gamla metið í greininni átti sveit Ægis frá árinu 2011. Sveitina skipuðu: Stefanía Sigurþórsdóttir, Sylwia Sienkiewicz, Eydís Ósk Kolbeinsdóttir og Sunneva Dögg Robertson.
Nokkur önnur innanfélagsmet féllu líka á mótinu. Fannar Snævar Hauksson sló metið í 400m fjórsundi sveina og Denas Kazulis í 400m skriðsundi og 200m baksundi í flokki snáða 8 ára og yngri, ásamt því að stúlknasveitin bætti innanfélagsmetið í 4 x 50m skriðsundi.
Á fimmtudagskvöldinu þá var röðin komin að 50m lauginni og þá féllu fleiri Íslandsmet. Sólveig María Baldursdóttir byrjaði á því setja Íslandsmet í flokki meyja 12 ára og yngri með frábæru 200m flugsundi. Gamla metið átti Salóme Jónsdóttir ÍA frá árinu 2007. Síðan var röðin komin að boðsundsveit stúlkna 15-17 ára. Stúlknaveitin bætti metið í 4 x 100m skriðsundi og sló með því met stúlknasveitar SH frá árinu 2007. Sveitina skipuðu: Sylwia Sienkiewicz, Stefanía Sigurþórsdóttir, Sunneva Dögg Robertson og Eydís Ósk Kolbeinsdóttir. Þar með á stúlknasveitin orðið gildandi met bæði í 50m og 25m laug í 4 x100m skriðsundi.
Nokkur innanfélagsmet féllu líka á mótinu, Denas Kazulis setti innanfélagsmet í 200m skriðsundi 100m bringusundi og 50m bringusundi, Fannar Snævar Hauksson í 400m fjórsundi sveina, Stefanía Ósk Halldórsdóttir í 400m skriðsundi og Sólveig María Baldursdóttir í 50m og 100m flugsundum.
Glæsilegur endapunktur á árinu hjá sundfólki ÍRB, sem hefur hreint út sagt verið stórkostlegt á árinu. Unnið allar þær liðakeppnir sem liðið hefur keppt í. AMÍ, Bikar karla og kvenna í 1. deild og Bikar kvenna í 2. deild ásamt því að skila sögulegum árangri á nýafstöðnu Íslandsmóti, segir í tilkynningu frá ÍRB.
Mynd 1.
Mynd 2.