Þrjú Íslandsmet hjá Herði
Íslandsmeistaramót unglinga og öldunga 2001 var haldið í Planet Gym 80 sl. laugardag. Tveir keppendur frá Massa tóku þátt í mótinu, þeir Hörður Birkisson og Valur Björnsson og var frammistaða þeirra mjög góð. Hörður setti þrjú Íslandsmet en hann keppir í 67,5 kg. flokki öldunga. Hann bætti sig í hnébeygju, lyfti 110 kg og í réttstöðu lyfti hann 180,5 kg. Hörður bætti líka samanlagðan árangur og lyfti 370 kg. samtals.
Valur bætti sinn persónulega árangur í öllum greinum en hann keppir í 75 kg. flokki öldunga, 40 ára og eldri. Hann tók 150 kg. í hnébeygju, 115 kg. í bekkpressu og 170 kg. í réttstöðu, samtals 435 kg.