Þrír úr Keflavík og þrír úr FH í byrjunarliði U-21
Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari 21-árs landsliðsins hefur tilkynnt landsliðshóp sinn fyrir leikinn gegn Svíum í dag. Þrír Keflvíkingar og þrír FH-ingar eru í byrjunarliðinu. Liðið er annars skipað eftirtöldum leikmönnum:
Markvörður: Bjarni Þórður Halldórsson (Fylkir)
Varnarmenn: Jónas Guðni Sævarsson (Keflavík), Sverrir Garðarsson (FH), Tryggvi Bjarnason (ÍBV), Henning Eyþór Jónasson (Þrótti Rvk.)
Miðjumenn: Emil Hallfreðsson (FH), Ólafur Ingi Skúlason (Arsenal), Davíð Þór Viðarsson (FH), Ingvi Rafn Guðmundsson (Keflavík).
Framherjar: Hörður Sveinsson (Keflavík), Hannes Þ. Sigurðsson (Viking Stavangri)
Leikurinn fer fram í Grindavík og hefst kl. 15:30