Þrír sundmenn á Ólympíudögum Evrópuæskunnar
Þrír sundmenn úr ÍRB munu á laugardaginn halda til keppni á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar í Belgrad. Mótið sjálft hefst síðan á mánudaginn. Sundmennirnir eru Gunnar Örn Arnarson, Soffía Klemenzdóttir og Svandís Þóra Sæmundsdóttir.
Sundhópur SSÍ telur 10 manns, 5 strákar og 5 stelpur ásamt fríðu föruneyti. Einnig verður keppt í öðrum greinum s.s frjálsum, fimleikum, handbolta, körfubolta, blaki, júdó, tennis og borðtennis. Sundkrakkarnir hafa æft mjög vel frá AMÍ og stefna á góðan árangur í mótinu.
www.keflavik.is