Þrír Suðurnesjamenn í lokahóp í körfuboltanum
16 manna hópur Íslands sem tekur þátt í undankeppni EuroBasket 2017
Suðurnesjamenn eiga þrjá fulltrúa í 16 manna landsliðshóp karla í körfubolta sem tilkynntur var í dag. Þar eru Njarðvíkingarnir Logi Gunnarsson og Elvar Már Friðriksson, sem leikur í háskóla í Bandaríkjunum, auk þess sem Grindvíkingurinn Ólafur Ólafsson er í hópnum. Hér fyrir neðan má sjá þá 16 leikmenn sem koma til með að mynda loka æfingahóp landsliðsins í ár og leika þá sex landsleiki sem framundan eru í undankeppni EM fyrir EuroBasket 2017.
16 manna leikmannahópur:
Axel Kárason · Svendborg Rabbits, Danmörk
Brynjar Þór Björnsson · KR
Darri Hilmarsson · KR
Elvar Már Friðriksson · Barry University / Njarðvík
Haukur Helgi Pálsson · Rouen Metropole Basket, Frakkland
Hlynur Bæringsson · Sundsvall Dragons, Svíþjóð
Hörður Axel Vilhjálmsson · Rythmos BC, Grikkland
Jón Arnór Stefánsson · Valencia, Spánn
Kristófer Acox · Furman University / KR
Logi Gunnarsson · Njarðvík
Martin Hermannsson · Étoile de Charleville-Mézéres, Frakkland
Ólafur Ólafsson · Grindavík
Ragnar Ágúst Nathanaelsson · Þór Þorlákshöfn
Sigurður Gunnar Þorsteinsson · Doxa Pefkon, Grikkland
Tryggvi Þór Hlinason · Þór Akureyri
Ægir Þór Steinarsson · San Pablo Inmobiliaria, Spánn