Þrír leikir á Suðurnesjum í kvöld
Tólfta umferð í 1. deild karla í knattspyrnu hefst í kvöld með fimm leikjum og lýkur á morgun með einum leik. Suðurnesjaliðin þrjú eiga öll leiki í kvöld. Grindavík og Njarðvík leika á heimavelli en Sandgerðingar eiga útileik.
Grindavík tekur á móti Stjörnunni á Grindavíkurvelli kl. 20:15 og geta með sigri styrkt ennfremur stöðu sína á toppi deildarinnar. Grindavík hefur 26 stig í efsta sætinu en Stjörnumenn eru með 15 stig í 6. sæti deildarinnar.
Njarðvíkingar eru á góðu róli eftir frækinn 3-1 sigur gegn Stjörnunni á dögunum en þeir taka á móti Leikni kl. 20:00 á Njarðvíkurvelli. Leiknir hefur 10 stig í 9. sæti deildarinnar en Njarðvíkingar eru með 11 stig í 8. sæti.
Botnlið Reynis frá Sandgerði mætir Fjölni á Fjölnisvelli í kvöld kl. 20:00 en Fjölnismenn hafa verið mikið í fjölmiðlum síðustu daga af öllum röngum ástæðum og verður fróðlegt að sjá hvort þeim takist að halda sig á mottunni í stúkunni í kvöld. Reynismenn eru á botni deildarinnar með 7 stig en Fjölnir vermir 4. sætið með 20 stig.
Víðismenn mæta Kára í 3. deildinni í kvöld en Víðir er á toppi B-riðils í 3. deild með 21 stig. Leikurinn hefst kl. 20:00 á Garðsvelli í kvöld.