Bygg
Bygg

Íþróttir

Þriðja tapið í röð á heimavelli
Þriðjudagur 26. júlí 2005 kl. 23:24

Þriðja tapið í röð á heimavelli

Grindvíkingar máttu þola sinn þriðja tapleik í röð á heimavelli þegar Skagamenn komu í heimsókn í kvöld í Landsbankadeildinni. ÍA fór með sigur af hólmi, 1-3, en Grindvíkingar léku á níu leikmönnum undir það síðasta.Grindvíkingar eru því enn á botni deildarinnar með 9 stig ásamt Þrótti sem hefur hagstæðara markahlutfall.

Heimamenn hófu leikinn af krafti og virtust til alls líklegir, á 13. mínútu leiksins átti Michael Zeyer skot að marki ÍA eftir góða sóknaruppbyggingu Grindvíkinga. Bjarki Guðmundsson, markvörður Skagamanna, varði skotið. Zeyer átti fremur dapran dag í liði Grindavíkur og hefur ekki náð sér almennilega á strik í sumar.

Aðeins mínútu síðar átti Eysteinn Hauksson fast skot framhjá og strax í næstu sókn Grindvíkinga skaut Robert Niestroj í varnarmann ÍA eftir frábæra sendingu frá Magnúsi Þorsteinssyni sem var sloppinn einn inn fyrir vörn Skagamanna en sendi, í óeigingirni sinni, á Robert en ÍA bjargaði í horn.

Gegn gangi leiksins skoruðu gestirnir á 24. mínútu, Igor Pesic gaf þá frá hægri kantinum yfir á þann vinstri til Hafþórs Vilhjálmssonar sem sendi knöttinn fyrir markið. Kom þá Hjörtur Hjartarson askvaðandi inn í teig og skallaði knöttinn í netið, óverjandi fyrir Boban Savic í markinu. Grindavík 0 – 1 ÍA.

Skagamenn pressuðu stíft á Grindvíkinga eftir markið og gerðu á tíðum mikinn usla en heimamenn jöfnuðu sig fljótlega.

Á 45. mínútu áttu Skagamenn fína sókn og upp hófst kapphlaup millum Savics og Hafþórs sem endaði með samstuði og fékk Hafþór að líta gula spjaldið fyrir að fara með fótinn í Savic sem hafði þegar náð til knattarins.

Leikar stóðu því 0-1 í hálfleik fyrir ÍA.

Í seinni hálfleik sóttu Skagamenn með vindi og virtist þeim líka það vel, slíkur var sóknarþunginn.

Grindvíkingar áttu þó ágætar sóknarrispur í upphafi seinni hálfleiks og skallaði Sinisa Kekic rétt framhjá marki ÍA á 47. mínútu.

Tveimur mínútum síðar, á 49. mínútu, kom svo annað mark Skagamanna. Það gerði Andri Júlíusson eftir stungusendingu frá Igor Pesic, varnarmenn Grindavíkur töldu Andra rangstæðan en ekkert var dæmt svo Andri gekk á lagið og setti boltann framhjá Savic í markinu. Grindavík 0 – 2 ÍA.

Hafþór Ægir Vilhjálmsson var skeinuhættur í liði Skagamanna og áttu varnarmenn Grindavíkur oft á tíðum í basli með hann á vinstri kantinum.

Paul McShane fékk að líta gult spjald á 58. mínútu fyrir brot á Guðjóni Sveinssyni.

Á 67. mínútu leiksins misstu Grindvíkingar Robert Niestroj af leikvelli en hann fékk beint rautt spjald fyrir að fara aftan í Igor Pesic, nokkuð strangur dómur, en dómari leiksins Garðar Örn Hinriksson var viss í sinni sök. Grátt bættist á svart hjá Grindvíkingum þegar Guðjón Sveinsson tók aukaspyrnuna og sendi boltann fyrir markið, barst hann til Helga Magnússonar sem skoraði þriðja mark Skagamanna með skalla. Grindavík 0 – 3 ÍA.

Andri Hjörvar Albertsson kom inn á sem varamaður í liði Grindavíkur á 69. mínútu en hann þurfti frá að víkja vegna meiðsla um 10 mínútum síðar. Léku heimamenn því tveimur færri síðasta korter leiksins en tæpum fjórum mínútum var bætt við venjulegan leiktíma.

Á 84. mínútu náðu Grindvíkingar að klóra í bakkann en það mark gerði Mounir Ahandour þegar hann fylgdi eftir skoti frá Óskari Haukssyni sem Bjarka misfórst að halda í Skagamarkinu.

Lengra komust Grindvíkingar ekki og 1-3 tap því staðreynd og því þriðji leikurinn í röð sem Grindvíkingar tapa á heimavelli. Grindvíkingar eru á botni deildarinnar og þurfa að gyrða í brók ætli þeir sér að spila í Landsbankadeildinni að ári.

Staðan í deildinni

Byrjunarlið Grindavíkur:
Boban Savic (m), Mathias Jack, Óðinn Árnason, Paul McShane, Sinisa Kekic (f), Eysteinn Hauksson, Mounir Ahandour, Michael Zeyer, Robert Niestroj, Eyþór Atli Einarsson og Magnús Þorsteinsson.

Byrjunarlið ÍA:
Bjarki Guðmundsson (m), Gunnlaugur Jónsson, Ellert Jón Björnsson, Reynir Leósson, Pálmi Haraldsson, Hjörtur Hjartarson, Guðjón Sveinsson, Andri Júlíusson, Igor Pesic, Helgi Magnússon og Hafþór Vilhjálmsson.

VF-myndir/ Hilmar Bragi Bárðarson




Bílakjarninn
Bílakjarninn