HSS
HSS

Íþróttir

Þriðja tap Keflvíkinga staðreynd
Frá leik Keflavíkur og Breiðabliks í 3. umferð
Miðvikudagur 20. maí 2015 kl. 21:04

Þriðja tap Keflvíkinga staðreynd

liðið situr í 11. sæti deildarinnar með 1 stig og 2 mörk skoruð

Keflavík mætti Fjölni í Grafarvoginum í kvöld í 4. umferð Pepsí deildar karla þar sem að heimamenn fóru með 1-0 sigur af hólmi í baráttuleik. Þar með hafa Keflvíkingar tapað þremur af fyrstu fjórum leikjum sínum í deildinni og sitja í neðsta sæti deildarinnar ásamt ÍBV með aðeins 1 stig af 12 mögulegum.

Keflvíkingar voru betri aðilinn í fyrri hálfleik og sköpuðu sér fleiri færi en Fjölnismenn. Á 10. mínútu leiksins átti Samuel Hernandes fast skot að marki Fjölnismanna sem sigldi rétt framhjá markinu. Eftir það áttu Keflvíkingar nokkur hálffæri en náðu aldrei að koma sér í dauðafæri þrátt fyrir ágæta kafla og góð uppspil inn að svæði heimamanna en ákveðinn brodd vantaði í sóknarleik liðsins til að klára þann undirbúning.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Hólmar Örn Rúnarsson átti svo góða aukaspyrnu á 40. mínútu á hættulegum stað sem að Þórður Ingason í marki Fjölnis varði vel. Fjölnismenn áttu svo sín einu færi í hálfleiknum á síðustu 5 mínútum fyrri hálfleiks en Richard Arends var vel vakandi í marki Keflavíkur og átti ekki í erfiðleikum með það sem á markið kom. Staðan því markalaus í hálfleik.

Fjölnismenn komu betur stemmdir inn í síðari hálfleikinn og sóttu að marki Keflavíkur fyrstu 10 mínútur síðari hálfleiks og áttu sitt hættulegasta færi þegar Guðmundur Karl Guðmundsson óð upp vinstri kantinn og sendi beitta sendingu fyrir mark Keflvíkinga sem að fyrirliðinn Haraldur Freyr Guðmundsson náði að komast fyrir en hreinsun hans frá markinu varð næstum að sjálfsmarki er hann hitti boltann illa og Fjölnismenn uppskáru hornspyrnu. Eftir hana fengu heimamenn aukaspyrnu á vítateigshorninu en arfaslök spyrna Ólafs Páls Snorrasonar fór langt framhjá markinu.

Kristján Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, gerði þrjár breytingar á liði sínu á 10 mínúta kafla um miðbik hálfleiksins og taldi sig hafa séð nóg frá sóknarlínu liðsins sem hafði ekki fengið úr miklu að moða í síðari hálfleik og skipti þeim Herði Sveinssyni og Indriða Áka Þorlákssyni út fyrir þá Daníel Gylfason og Magnús Þorsteinsson. Þá kom Jóhann Birnir Guðmundsson inná fyrir Samuel Hernandes korteri fyrir leikslok.

Það var svo á 83. mínútu sem að Fjölnismenn veittu Keflvíkingum banvænt sár þegar heimamenn fengu dæmda vítaspyrnu eftir að Magnús Þórir Matthíasson hafði fengið boltann í höndina eftir skalla frá Fjölnismanni og Valgeir Valgeirsson, ágætur dómari leiksins, var ekki í nokkrum vafa er hann benti á punktinn. Úr spyrnunni skoraði Þórir Guðjónsson örugglega framhjá Richard Arends sem fór í vitlaust horn og heimaenn fögnuðu gríðarlega.

Keflvíkingar tefldu djarft á lokamínútum leiksins og reyndu allt hvað þeir gátu til að jafna metin en voru í raun heppnir að fá ekki annað mark á sig þegar allt liðið var komið hátt upp á vallarhelming Fjölnismanna sem beittu eitruðum hraðaupphlaupum þegar boltinn vannst.

Ekki náðu Keflvíkingar að ógna marki Fjölnismanna og því þriðja tap liðsins staðreynd þetta sumarið. 

Keflvíkingar hafa undanfarin ár verið þekktir fyrir að hefja Íslandsmótið af krafti og dala eftir því sem líður á mótið en ekki verður hægt að segja annað en að liðið sé ekki komið í sitt besta form nú þegar fjórar umferðir eru búnar af mótinu. Keflvíkingar hafa aðeins skorað tvö mörk það sem af er og ljóst að sóknarmenn liðsins verða að detta í gang ef ekki á að grafa djúpa holu sem erfitt verður að klifra uppúr. Það er þó engin ástæða til að halda því fram að liðið sé í vondum málum enn þar sem að aðeins 3 stig skilja að liðin í 12. til 8. sætis og því geta nokkrir góðir leikir lyft liðinu hratt upp töfluna.

Keflvíkingar leika næst gegn Fylkismönnum mánudaginn 25. maí á Nettóvellinum.