Þriðja Íslandsmet karlasveitar ÍRB

Metsveitina skipa þeir Davíð Hildiberg Aðalsteinsson, Guðni Emilsson, Birkir Már Jónsson og Hjalti Rúnar Oddsson. Í 4x100m flugsundi bætti sveitin Íslandsmetið um rúmlega sex sekúndur en í 4x50m sundi bætti hún metið um 1/10 úr sekúndu.
Einnig féllu þrjú félagamet, Soffía Klemenzdóttir bætti telpnametið í 50m skriðsundi (28.20) og þær Elfa Ingvadóttir (18:53:45 ) og Erla Dögg Haraldsdóttir (18:09:28 ) bættu metin í 1500m skriðsundi.
Mynd: Jóhannes Kristjánsson