Þorsteinn Þorsteinsson til liðs við Reyni Sandgerði
Reynir Sandgerði hefur fengið Þorstein Þorsteinsson á láni frá Keflavík. Þorsteinn hefur undanfarin þrjú tímabil verið á láni hjá Víði Garði. Í fyrra lék hann alla leiki Víðis í annarri deildinni og skoraði sjö mörk en það dugði ekki til að hjálpa liðinu að bjarga sér frá falli.
Þorsteinn mun núna leika með nágrönnum Víðis í annarri deildinni í sumar. Þessi 22 ára gamli leikmaður getur leikið bæði á kantinum og frammi en bróðir hans er Magnús Sverrir Þorsteinsson framherji Keflvíkinga.
Mynd: Þorsteinn Þorsteinsson (til hægri) ásamt Magnúsi Sverri Þorsteinssyni bróður sínum.