Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Þorsteinn Gunnarsson lætur af störfum vegna viðræðna við Guðjón
Mánudagur 24. október 2011 kl. 12:45

Þorsteinn Gunnarsson lætur af störfum vegna viðræðna við Guðjón

Í hádegisfréttum Bylgjunnar rétt í þessu var greint frá því að Þorsteinn Gunnarsson, formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur hyggst láta af störfum vegna ákvörðunar félagsins um að hefja viðræður við þjálfarann umdeilda Guðjón Þórðarson.

Eins og fram hefur komið ríkir ekki einuhugur um það innan knattspyrnudeildar Grindavíkur að ráða Guðjón í starf þjálfara. Engu að síður var sú ákvörðun tekin á stjórnarfundi í gær að hefja formlega viðræður við Guðjón sem var rekinn frá BÍ/Bolungarvík fyrir helgi. Í kjölfarið af þeirri ákvörðun hefur Þorsteinn ákveðið að láta af störfum á aðalfundi í næstu viku en hann hefur verið mótfallinn viðræðum við Guðjón.

Þorsteinn hefur samhliða formannsstarfinu sinnt markmannsþjálfun hjá meistaraflokki Grindavíkur með góðum árangri en mun einnig hætta því. Þorsteinn kveðst þó hafa hug á að halda áfram slíkri þjálfun hjá öðru félagi.

Mynd: Þorsteinn er hægra megin á myndinni.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024