Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Íþróttir

Þorleifur og Elínborg íþróttamenn Grindavíkur
Föstudagur 1. janúar 2010 kl. 20:58

Þorleifur og Elínborg íþróttamenn Grindavíkur

Körfuknattleiksmaðurinn Þorleifur Ólafsson og knattspyrnukonan Elínborg Ingvarsdóttir voru kjörin íþróttamaður og íþróttakona ársins 2009 í Grindavík í athöfn sem fram fór í Saltfisksetrinu á Gamlársdag og var á vegum UMFG og afrekssjóðs Grindavíkur. Fjölmargir fylgdust með athöfninni en sérstakur gestur við afhendinguna var Grindvíkurinn Ólafur Örn Bjarnason sem hefur leikið sem atvinnuknattspyrnumaður hjá Brann undanfarin ár við góðan orðstír, að því er fram kemur á vefsíðunni grindavik.is

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Þorleifur var einn af lykilmönnum körfuboltaliðs Grindavíkur sem varð í 2. sæti á Íslandsmótinu á síðustu leiktíð eftir æsispennandi einvígi við KR um titilinn auk þess sem hann lék með landsliðinu. Elínborg var einn af lykilmönnum kvennaliðs GRV sem stóð sig vonum framar í úrvalsdeildinni og hélt þar sæti sínu auk þess sem hún átti fast sæti í U19 ára liði Íslands sem komst í úrslit EM í sumar.

Eftirtaldir íþróttamenn og konur voru tilnefndir af sínum deildum/ félögum í kjörið að þessu sinni og fengu þeir verðlaun:
Íþróttakona Grindavíkur:


Arnfríður Ingibjörg Grétarsdóttir - Golf
Ása Dögg Aðalsteinsdóttir - Knattspyrna
Elínborg Ingvarsdóttir - Knattspyrna
Helga Hallgrímsdóttir - Körfuknattleikur
Petrúnella Skúladóttir - Körfuknattleikur
Íþróttamaður Grindavíkur:
Gilles Mbang Ondo - Knattspyrna
Hávarður Gunnarsson - Golf
Hilmar Örn Benediktsson - Sund
Páll Axel Vilbergsson - Körfuknattleikur
Scott Ramsey - Knattspyrna
Sigurpáll Albertsson - Júdó
Þorleifur Ólafsson - Körfuknattleikur

Að auki verða veittar viðurkenningar til einstaklinga fyrir Íslandsmeistaratitla, fyrsta landsleik auk sérstakra hvatningarverðlauna sem veitt voru ungum og efnilegum íþróttamönnum Grindavíkur.

Íþróttamenn og konur sem voru tilnefnd til verðlaunanna, myndir frá grindavik.is