Þorbjörn styrkir fótboltann í Grindavík
Þorbjörn hf í Grindavík og knattspyrnudeild UMFG skrifuðu undir nýjan styrktarsamning nú í vikunni. Samningurinn er til þriggja ára og er að upphæð kr. 12 milljónir sem er nokkur hækkun frá fyrra samningi. Á meðfylgjandi mynd sem tekin er af síðu fyrtækisins má sjá Jón H Gíslason, nýkjörinn formann knattspyrnudeildarinnar, og Eirík Tómasson, forstjóra Þorbjarnar hf., handsala samninginn.