Bygg
Bygg

Íþróttir

Þórarinn og Magnús Þorsteins aftur til Keflavíkur
Þriðjudagur 17. janúar 2006 kl. 12:02

Þórarinn og Magnús Þorsteins aftur til Keflavíkur

Keflvíkingum er að berast liðsstyrkur úr kunnuglegri átt, en framherjarnir Þórarinn Kristjánsson og Magnús Þorsteinsson eru á leið til liðsins eftir árs fjarveru.

Þórarinn, sem fékk sig lausan frá Þrótti eftir sumarlanga dvöl, hefur verið í viðræðum við Keflvíkinga um nokkra tíð. Hann fór í speglun á hné fyriri skemmstu og kom vel út úr henni.

Magnús flutti sig yfir til Grindavíkur eftir missætti við Guðjón Þórðarson, þáverandi þjálfara Keflavíkur, en sagðist í spjalli við Víkurfréttir í morgun vera afar glaður með að snúa aftur. „Keflavík er auðvitað mitt félag og eina ástæðan fyrir því að ég fór var Guðjón. Þannig komst ég að samkomulagi við Grindavík um að segja upp samningi okkar og mun væntanlega ganga frá samningi við Keflavík í vikunni.“

Magnús segist ekki óttast samkeppnina um framherjastöðurnar í liðinu, en nú eru þeir fjórir um hituna. Magnús, Þórarinn, Hörður Sveinsson og Guðmundur Steinarsson. „Nei, alls ekki. Þetta gæti orðið barningur, en við erum búnir að vera að berjast um sæti í liðinu í mörg ár. Maður kemst að ef maður stendur sig nógu vel.“

Annars er það að frétta úr herbúðum Keflvíkinga að þeir Issa Kadir og Kenneth Gustavsson eru komnir til landsins til æfinga og Branko Milisevic er væntanlegur á næstunni.

Ekki er enn útséð með að Jóhann B. Guðmundsson snúi aftur til liðsins eftir fjarveru í atvinnumennsku, en hann mun ekki hafa gefið upp vonina um að komast að hjá liði erlendis.
Bílakjarninn
Bílakjarninn