Þóranna stigahæst í íslenska landsliðinu
Þóranna Kika Hodge-Carr var stigahæst með 33 stig í leik gegn Albaníu með U18 landsliði Íslands á miðvikudaginn síðastliðinn. Þá var Birna Valgerður Benónýsdóttir þriðja stigahæsta með 20 stig. Báðar leika þær með liði Keflavíkur.
Íslenska landsliðið mætti Albönum í Dublin en leikurinn er hluti af Evrópumóti. Hann endaði með stórsigri Íslands 117:34.
Fleiri Suðurnesjakonur eru í hópnum en það eru þær Elsa Albertsdóttir, Kamilla Sól Viktorsdóttir, Katla Rún Garðarsdóttir og Hulda Ósk Bergsteinsdóttir.