Þokkalega sáttir með sumarið - segir Jóhann Birnir
Jóhann Birnir Guðmundsson, varafyrirliði Keflavíkur segist þokkalega sáttur með gengi Keflavíkurliðsins í sumar í Pepsi-deildinni í knattspyrnu en liðið tapaði fyrir Breiðabliki 2-3 í næst síðustu umferðinni á Nettó vellinum í Keflavík.
Jóhann sem hefur verið einn traustasti leikmaður liðsins í sumar er hér í stuttu viðtali í Sjónvarpi Víkurfrétta eftir leikinn gegn Breiðabliki.