HSS
HSS

Íþróttir

Þjóðhátíðarhlaup endurvakið í Njarðvík
Sigmundur Baldvinsson (Simbi í Koti) pabbi Magnúsar Þórs Sigmundssonar kemur í mark, þar á eftir er Sæmundur Einarsson, á hvítri skyrtu og svo Gunnar Guðmunds, Gunnsi í Stefánshúsi.
Fimmtudagur 11. júní 2015 kl. 00:10

Þjóðhátíðarhlaup endurvakið í Njarðvík

Knattspyrnudeild Njarðvíkur ætlar að endurvekja 17. júní hlaup á þjóðhátíðardaginn en það var árviss viðburður í mörg ár í Njarðvík en datt úr fyrir nokkrum árum. Fyrsta hlaupið var þegar Njarðvík fékk kaupstaðaréttindi 1977. Þá var hlaupið út að vegasjoppunni Fitjanesi á Fitjum frá Stapanum og til baka.

Fullorðnir hlaupa 5 km. og börn 1 km. Hlaupið verður frá Stapanum eins og gert var áður. Tímataka verður í hlaupinu og munu allir sem skrá sig frá þátttökuskjal með hlaupatímanum og öðrum upplýsingum.
Meðfylgjandi mynd er frá árdögum þessa hlaups, líklega í kringum 1980. Þekktir Njarðvíkingar koma í mark.

Bílakjarninn
Bílakjarninn