Þetta er það sem leikmenn dreymir um að upplifa
Sverrir Þór Sverrisson var enn að jafna sig eftir háspennuleik gegn Haukum í undanúrslitum bikarkeppni kvenna í körfubolta þegar blaðamaður náði tali af honum en Njarðvíkingar sigruðu þar eftir framlengingu. „Þetta var svakalegt gegn Haukum og það var erfitt að sofna eftir þann leik, “ segir Sverrir sem er þjálfari Njarðvíkinga. „Við virtumst vera með þetta í hendi okkar en þær skora ævintýralega körfu og jafna í lokin. Svo voru ekki nema örfá sekúndubrot eftir þegar þær skora í framlengingunni en þetta fór bara eins og það fór.“
Viljum koma heim með fyrsta bikarinn
„Við förum ekki að breyta út af vana okkar varðandi undirbúning en við erum með fjölbreyttan hóp. Við erum með reynda leikmenn sem hafa spilað svona leiki og svo erum við með ungar stelpur sem þekkja þetta ekki. Svo erum við með tvo erlenda leikmenn sem þekkja þetta ekki. Það sama má segja um Snæfell,“ segir Sverrir en hann ætlar ekki að afsaka neitt með því að tala um reynsluleysi. „Það verður bara mætt í Höllina og stefnt að því að koma heim með fyrsta bikarinn.“
Sverrir segir Snæfellinga vera með mjög gott lið og að þær hafi verið öflugar að undanförnu. „Þær bættu við sig erlendum leikmanni sem gerir liðið enn betra. Það verður gaman að mæta þeim í Höllinni þar sem hvorugt liðið hefur náð að sigra bikarkeppnina í kvennaboltanum.“
Sverrir Þór hefur farið tvisvar í Höllina sem leikmaður Keflvíkinga og hampað bikarnum í bæði skiptin. „Þetta er auðvitað stærsti staki leikurinn í íslenskum körfubolta og þetta er eitthvað sem að leikmenn dreymir um að upplifa. Ég er því einkar ánægður fyrir hönd minna leikmanna að við séum búin að tryggja okkur sæti í Höllinni. Það þarf samt að vinna leikinn til þess að gera þetta sem eftirminnilegast,“ segir Sverrir en hann er samt á því að þetta sé bara körfuboltaleikur og tekist verði á við hann eins og hvert annað verkefni. „Það er krafa hjá okkur að leikmenn leggi sig alla fram þegar þær klæðast búningnum og hafi um leið gaman af því sem þær eru að gera. Þetta verður hrikalega gaman og ég er orðinn gríðarlega spenntur,“ segir Sverrir um leið og hann þakkar þann stuðning sem Njarðvíkingar sýndu gegn Haukum. „Ég vona bara að allt það fólk og sem flestir í viðbót mæti á laugardaginn og styðji við bakið á okkur.“