HSS
HSS

Íþróttir

Teitur semur við Stjörnuna
Miðvikudagur 4. maí 2011 kl. 07:57

Teitur semur við Stjörnuna

Teitur Örlygsson hefur samið við Stjörnuna í Garðabæ um áframhaldandi þjálfun á liði meistaraflokks karla í körfuknattleik. Teitur náði frábærum árangri með liðið á síðustu leiktíð og endaði liðið eins og kunnugt er í öðru sæti úrvalsdeildar en Teitur hefur verið í Garðabænum frá árinu 2009. Lagði stjórn deildarinnar áherslu á að semja við Teit og var gengið frá samningum í gær og gildir hann næstu tvö árin. Það er því ljóst að Teitur mun verða við stjórnina í Garðabænum næstu árin og fram kemur á heimasíðu Garðbæinga að ekkert annað sé á dagskránni en að ná enn lengra með Teit í brúnni.

Bílakjarninn
Bílakjarninn