Tap í fyrsta leik Njarðvíkinga
Guðmundur skoraði í blálokin
Njarðvíkingar hófu fótboltasumarið með tapi gegn Aftureldingu á útivelli í fyrstu umferð 2. deildar. Lokatölur urðu 3-1 þar sem Guðmundur Steinarsson skoraði mark Njarðvíkinga í blálokin. Afturelding skoraði sín mörk með nokkuð reglulegu millibili en í hálfleik var staðan 1-0.
Eftir að staðan varð 2-0 misstu heimamenn leikmann af velli með rautt spjall en það kom þó ekki í veg fyrir að þeir skoruðu þriðja markið þegar rúmar 10 mínútur lifðu leiks. Það var svo markavélin Guðmundur sem sá um að setja eitt mark í lokin fyrir Njarðvíkinga. Næsti leikur þeirra grænu er svo á heimavelli þann 18. maí gegn Dalvík/Reyni.