Bygg
Bygg

Íþróttir

Tap í fyrsta leik
Fimmtudagur 3. ágúst 2006 kl. 13:21

Tap í fyrsta leik

Annar leikur íslenska liðsins á Norðurlandamótinu í Finnlandi fer fram í dag. Íslenska liðið mætir því sænska kl. 14:30 að íslenskum tíma.

Ísland lá í gær gegn Finnum 81-73 þar sem Keflvíkingarnir Magnús Gunnarsson (18 stig) og Arnar Freyr Jónsson (14 stig) voru að draga vagninn í sókninni.

„Þetta var fyrsti leikurinn okkar og við vorum ekkert voðalega vel samhæfðir, Magnús og Arnar áttu góðan leik en aðrir leikmenn áttu kannski ekki sinn besta leik í gær,“ sagði Sigurður Ingimundarson, landsliðsþjálfari. Þess má geta að Logi Gunnarsson gerði aðeins 7 stig í leiknum og Jakob Örn Sigurðarson gerði aðeins 6 stig en þeir tveir eru á meðal lykilmanna íslenska liðsins.

„Jakob fékk högg á lærið í leiknum og lék lítið sem ekkert í síðari hálfleik og Logi var í villuvandræðum,“ sagði Sigurður.

Íslendingar mæta Svíum í dag en sænska liðið lagði Dani 60-56 í fyrsta leik mótsins.

 

VF-mynd/ Magnús átti fínan leik í gær fyrir íslenska liðið

Bílakjarninn
Bílakjarninn