HSS
HSS

Íþróttir

Tap hjá Njarðvík í Mjólkurbikarnum
Úr leik Njarðvíkur og Þróttar R í kvöld. VF-mynd: JBO
Mánudagur 30. apríl 2018 kl. 19:56

Tap hjá Njarðvík í Mjólkurbikarnum

Njarðvík tók á móti Þrótti úr Reykjavík í 32 liða úrslitum Mjólkurbikarsins í kvöld á Njarðtaksvelli. Liðin mætast aftur í Inkasso-deildinni næstkomandi laugardag þannig að óhætt er að segja að liðin hafi tekið upphitun fyrir deildina í kvöld.

Leikurinn fór nokkuð rólega af stað en það dró strax til tíðinda á 12. mínútu þegar Þróttur skoraði og staðan 0-1 fyrir gestina. Stefán Birgir Jóhannesson, leikmaður Njarðvíkur fékk gult spjald á 21. mínútu leiksins en Njarðvík fékk dauðafæri á 25. mínútu þegar Kenneth Hogg skallaði boltann framhjá nánast opnu marki. Þróttur bætti við öðru marki sínu á 34. mínútu og staðan því orðin 0-2 en Ólafur Hrannar Kristjánsson, leikmaður Þróttar skoraði bæði mörkin.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Njarðvík minnkaði muninn á 38. mínútu þegar Andri Fannar Freysson skoraði úr víti og staðan orðin 1-2 en Þróttur minnkaði muninn strax á 39. mínútu með marki frá Ólafi Hrannari og hann því kominn með þrennu í leiknum og staðan 1-3. Ekki voru skoruð fleiri mörk í fyrri hálfleik og leiddi Þróttur með tveimur mörkum þegar liðin gengu inn í klefa í hálfleik.

Njarðvík byrjaði seinni hálfleikinn af krafti og áttu tvær hornspyrnur snemma í seinni hálfleik. Njarðvík gerði breytingu á liði sínu á 53. mínútu þegar Helgi Þór Jónasson kom inn á fyrir Theodór Guðna Halldórsson og á 68. mínútu kom síðan Atli Freyr Ottesen Pálsson inn á fyrir Bergþór Inga Smárson.

Þróttur jók forystu sína á 71. mínútu leiksins þegar Daði Bergsson skoraði og staðan því orðin 1-4 fyrir gestina. Njarðvík gerði síðustu skiptingu sína á 83. mínútu þegar Birkir Freyr Sigurðsson kom inn á fyrir Luka Jagacic. Stefán Birgir Jóhannesson minnkaði munin fyrir Njarðvík á 85. mínútu og staðan því orðin 2-4. Það urðu lokatölur leiksins og Njarðvíkingar því dottnir út Mjólkurbikarnum í knattspyrnu.

Markaskorarar leiksins:
0-1 Ólafur Hrannar Kristjánsson ('12)
0-2 Ólafur Hrannar Kristjánsson ('34)
1-2 Andri Fannar Freysson ('38, víti)
1-3 Ólafur Hrannar Kristjánsson ('39)
1-4 Daði Bergsson ('71)
2-4 Stefán Birgir Jóhannesson ('85)