MSS námskeið haust 2026
MSS námskeið haust 2026

Íþróttir

Tap hjá Keflavík gegn Haukum
Stevens skilaði flottum tölum gegn Haukum en það dugði ekki til. VF mynd: Hildur
Laugardagur 26. nóvember 2016 kl. 16:16

Tap hjá Keflavík gegn Haukum

Keflvíkingar mættu Haukum í Schenkerhöllinni í gær í Dominos deild karla og töpuðu, 96-76. Haukar voru sterkari aðilinn allan leikinn og sýndu Keflvíkingar ekki mikla tilburði til þess að sigra þennan leik. Hörður Axel Vilhjálmsson er snúinn aftur til Keflavíkur eftir að hafa verið í atvinnumennsku í Belgíu og Sigurður Ingimundarson einnig, en hann hefur verið í veikindaleyfi.

Breytingarnar virðast ekki fara vel í Keflavíkurliðið en þeir spiluðu ekki sérstaklega vel, hvorki sóknar- né varnarlega. Haukar skoruðu meira í öllum leikhlutunum en staðan í hálfleik var 48-36. Greinilegt að Keflvíkingar þurfa tíma til að slípa sig betur saman.

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Besti leikmaður Hauka var Sherrod Wright með 33 stig og 13 fráköst og Emil Barja skoraði 22 stig, gaf 7 stoðsendingar og stal 3 boltum. Hjá Keflavík var Amin Stevens með 26 stig, 17 fráköst og 5 stoðsendingar og Hörður Axel skoraði 20 stig, tók 5 fráköst og gaf 5 stoðsendingar.

Keflavík situr nú í 8.-10. sæti deildarinnar með 6 stig.

Bílakjarninn
Bílakjarninn