Bygg
Bygg

Íþróttir

Tap gegn KR á Sparisjóðsvellinum
Sunnudagur 8. ágúst 2010 kl. 22:25

Tap gegn KR á Sparisjóðsvellinum



Í kvöld tóku Keflvíkingar á móti KR í 15. umferð Pepsi deildar karla. Leiknum lauk með 0-1 sigri KR en markið skoraði Kjartan Henry Finnbogason stuttu fyrir leikhlé. Eftir leikinn sitja Keflvíkingar í 4. sæti deildarinnar með 23 stig.
Til að byrja með var leikurinn heldur jafn og var mikið um hálffæri á báða bóga. Á 17. mínútu átti Guðmundur Steinarsson glæsilegt skot af vinstri kantinum og virtist sem boltinn væri á leiðinni inn en Lars, markvörður KR, varði með tilþrifum í horn. Eftir því sem að leið á hálfleikin fóru gestirnir að sækja í sig veðrið. Á 42. mínútu kom svo eina mark leiksins, það skoraði Kjartan Henry Finnbogason með skalla eftir sendingu frá Óskari Erni.
Síðari hálfleikurinn var gjörólíkur þeim fyrri. Keflvíkingar voru miklu sterkari og sóttu stíft að marki gestanna. Á 56. mínútu kom glæsileg sending á Alen Sutej í teig gestanna. Alen stökk upp í boltann en skallinn var ónákvæmur og fór í kolvitlausa átt, dauðafæri þar sem KRingar sluppu með skrekkinn. Keflvíkingar áttu nokkur hættuleg færi í viðbót en tókst ekki að nýta neitt þeirra og því lauk leiknum með 0-1 sigri KR.
Næsti leikur Keflavíkur er gegn Selfossi á Selfossvelli fimmtudaginn 19. ágúst kl. 19:15.


Grindvíkingar sóttu stig Vodafonevöllinn
Valsmenn tóku á móti Grindvíkingum í kvöld í heldur bragðdaufum leik þar sem lítið gerðist og urðu lokatölur 0-0. Bæði lið áttu nokkur góð færi en þó voru Valsmenn ívið sterkari í leiknum. Eftir leikinn sitja Grindvíkingar í tíunda sæti með 13 stig. Næsti leikur þeirra er gegn FH á Grindavíkurvelli fimmtudaginn 19. ágúst og hefst hann kl. 19:15.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

VF-myndir / Sölvi Logason

Myndasafn úr leik Keflavíkur og KR er væntanlegt inná ljósmyndavef VF síðar í kvöld.