Tap á Selfossi
Keflvíkingar máttu sætta sig við tap gegn Selfyssingum fyrir austan fjall í kvöld.
Bæði lið mættu fersk til leiks og áttu sína spretti fram á við. Fyrsta mark leiksins kom úr síðustu spyrnu fyrri hálfleiks en þá barst boltinn út fyrir teiginn eftir mikið klafs og baráttu Keflvíkinga við að koma boltanum í burtu. Boltinn hrökklaðist til Egils Jónssonar sem gerði sér lítið fyrir og þrumaði boltanum í samúel af löngu færi. Smekklegt mark og heimamenn höfðu því eins marks forystu í hálfleik. Síðari hálfleikur var ekki búinn að lifa lengi þegar Jón Daði Böðvarsson fékk vítaspyrnu og úr henni skoraði Viðar Örn Kjartansson. Jón Daði átti einnig fínan undirbúning í fyrra markinu áður en boltinn barst að lokum út til Egils sem kláraði vel. Jón Daði átti því enn einn stórleikinn fyrir Selfyssinga í dag, segir í umfjöllun Sport.is um leikinn.
Keflvíkingar bitu aðeins frá sér á lokamínútunum en Jóhann B. Guðmundsson skoraði gott mark á 80.mínútu. Meira varð það þó ekki og glæsilegur sigur heimamanna staðreynd. Selfyssingar komust þar með úr fallsætinu, að minnsta kosti þar til leikur Fram og Stjörnunnar væri yfirstaðinn en hann hófst síðar en aðrir leikir dagsins. Keflvíkingar eru með 27 stig í 7.sæti deildarinnar.
Selfoss 2 – 1 Keflavík (1-0)
1-0 Egill Jónsson 45.mín.
2-0 Viðar Örn Kjartansson (vsp.) 49.mín.
2-1 Jóhann B. Guðmundsson 80.mín.