Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Íþróttir

Mánudagur 3. september 2001 kl. 10:29

Tap á Akureyri- Jafntefli í Njarðvík

Víðismenn sóttu Nökkva á Akureyri heim á laugardag í 2. deild. Leiknum lauk með 3-2 sigri heimamanna en Víðir er nú í 7. sæti 2. deildar með 19 stig.
Njarðvíkingar fengu Völsunga í heimsókn á sunnudag þegar liðin bitust um sæti í 2. deild. Guðmundur Einarsson og Björn Vilhelmsson skoruðu mörk Víðis.
Aðalsteinn Sigurkarlsson, Óskar Bragason og Sindir Ólafsson voru markaskorarar Nökkva í leiknum. Næsti leikur Víðis er við Borgnesingana í Skallagrími í Garðinum á laugardaginn.
Leik Njarðvíkur og Völsunga lauk með jafntefli og verða Njarðvíkingar að skora þegar liðin mætast næst en það er á Húsavík fimmtudaginn 6. september.
Mörk Njarðvíkinganna skoruðu Bjarni Sæmundsson og Eyþór Gunnarsson en Magnús Halldórsson og Nikola Niksic skoruðu mörk gestanna.
Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk
HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100