Tæpt í Röstinni - Þorleifur sendur í sturtu
Grindvíkingar mörðu sigur gegn grönnum sínum úr Njarðvík í Reykjanesmóti karla í körfubolta með 81 stigi gegn 79. Leikurinn fór fram á heimavelli Grindvíkinga í Röstinni og var leikurinn nokkuð vel sóttur.
Jafnræði var með liðunum allt frá upphafi en það var augljóst að hiti var í mönnum. Það var ekki mikið liðið af leiknum þegar Þorleifur Ólafsson fékk reisupassann eftir að hafa gefið Travis Holmes olnbogaskot í andlitið. Óljóst er hvað gekk á en Þorleifur var ósáttur við Holmes frá því úr sókninni áður og virtist gefa honum á kjaftinn þegar hann var á leið í gegnum hindrun.
Þorleifi var umsvifalaust kippt af velli af Helga Jónasi þjálfara og það var svo ekki fyrr en skömmu síðar að dómarar ákváðu að senda hann í sturtu, allt hið undarlegasta mál. En leikurinn hélt áfram og staðan var 39-38 fyrir Grindvíkinga í hálfleik sem léku einnig án Páls Axels Vilbergssonar og án erlendra leikmanna.
Liðin skiptust svo á forystunni allan síðari hálfleikinn og ungu strákarnir hjá Njarðvík voru margir hverjir að láta til sín taka, þá sérstaklega leikstjórnandinnn Elvar Friðriksson sem skoraði 18 stig í leiknum og stýrði leik þeirra grænu eins og herforingi.
Þegar rúm mínúta var eftir af leiknum leiddu Grindvíkingar með þremur stigum, 80-77. Þá skoraði Travis Holmes tvö af 26 stigum sínum og minnkaði muninn í 1 stig. Jóhann Árni Ólafsson fór svo á línuna fyrir Grindvíkinga og jók muninn í 2 stig. Njarðvíkingar brunuðu svo í sókn enda innan við 10 sekúndur eftir og svo virtist sem brotið hefði verið á Travis Holmes í þriggjastigaskoti þegar bjallan gall í lokin. Ekkert var dæmt og þrátt fyrir mótmæli Njarðvíkinga þá varð raunin sú á Grindvíkingar fóru með sigur af hólmi.
Stgahæstir hjá Grindavík voru þeir Jóhann Árni með 20 stig, Ólafur Ólafs og Sigurður Þorsteinsson voru svo með 16 stig hvor.
Hjá Njarðvík voru þeir Travis Holmes og Elvar atkvæðamestir, Travis Holmes með 26 stig og Elvar með 18.
Elvar Friðriksson var sprækur í kvöld
Ólafur Ólafsson kann vel við sig þarna uppi
Myndir Eyþór Sæmundsson