Bygg
Bygg

Íþróttir

Taekwondo fyrir foreldra iðkenda
Föstudagur 9. mars 2007 kl. 15:29

Taekwondo fyrir foreldra iðkenda

Í kvöld mun Taekwondodeild Keflavíkur standa að sérstakri foreldra og fullorðinsæfingu í Taekwondo. Æfingin verður sniðin til að henta hverjum sem er og eru til þess ætlaðar að kynna foreldrum Taekwondo-iðkenda og öðrum fullorðnum fyrir íþróttinni á annan hátt en krakkarnir æfa. Æfingin hefst kl. 19:00 í Íþróttaakademíunni í Reykjanesbæ í kvöld.

 

Notaðar verða æfingar með líkamanum til að stuðla að bættri heilsu, styrk og liðleika og verður iðkun þeirra algjörlega eftir getu og vilja hvers og eins. Þessi æfing verður óhefðbundin öðrum Taekwondo æfingum en komið verður víða við í ýmsum aðferðum við að styrkja og liðka líkama og sál og má þá nefna teygjur og liðleikaæfingar, meiðslaforvörn, almennar og sérhæfðar styrktaræfingar, huglæg þjálfun, herþjálfun, bardagalistir og bardagaíþróttaþjálfun.

 

Æfingin verður á léttu nótunum og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Allavega annað foreldri hvers barns ætti að láta sjá sig og prófa óhefðbundnar og öðruvísi æfingar sem skila ykkur miklu.

 

Hentugast er að mæta í léttum og þægilegum íþróttafötum (- skó), með vatnsbrúsa og góða skapið.

 

www.keflavik.is

 

Mynd: Feðgarnir Örn til hægri og Marel til vinstri eru duglegir Taekwondo-iðkendur.

Bílakjarninn
Bílakjarninn