Sverrir velur landsliðið - Ingibjörg í hópnum
Sverrir Þór Sverrisson landsliðsþjálfari og þjálfari Íslands- og bikarmeistara Njarðvíkinga, hefur valið þá 12 leikmenn sem skipa A-landslið kvenna sem fer á NM í Osló, Noregi, dagana 23.-27. maí. Að þessu sinni velur Sverrir einn leikmann frá Keflvíkingum og þrír Njarðvíkingar eru í hópnum, þar á meðal Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir sem nýlega tók skóna af hillunni frægu.
Landsliðið er skipað eftirtöldum leikmönnum:
Gunnhildur Gunnarsdóttir · Haukar
Helena Sverrisdóttir · Good Angels Kosice
Pálína Gunnlaugsdóttir · Keflavík
Petrúnella Skúladóttir · Njarðvík
Margrét Kara Sturludóttir · KR
Hildur Sigurðardóttir · Snæfell
Helga Einarsdóttir · KR
Sigrún Ámundadóttir · KR
Ragna Margrét Brynjarsdóttir · KFUM Sundsvall
María Ben Erlingsdóttir · Valur
Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir · Njarðvík
Ólöf Helga Pálsdóttir · Njarðvík
Þjálfari: Sverrir Þór Sverrisson
Aðstoðarþjálfari: Anna María Sveinsdóttir