Landhelgisgæslan 21-28. apríl
Landhelgisgæslan 21-28. apríl

Íþróttir

Svekkjandi tap en öflug frammistaða nýliðanna á Hlíðarenda
Frá leik Vals og Grindavíkur/Njarðvíkur í dag. VF-myndir: Hilmar Bragi
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
laugardaginn 25. apríl 2026 kl. 19:58

Svekkjandi tap en öflug frammistaða nýliðanna á Hlíðarenda

„Við sýndum það í dag að við eigum fyllilega heima í þessari deild,“ sagði Sigríður Emma F. Jónsdóttir, fyrirliði sameinaðs liðs Grindavíkur og Njarðvíkur, eftir naumt 2:1 tap gegn Val í fyrstu umferð Bestu deildar kvenna í knattspyrnu í dag.

Þrátt fyrir að hafa farið tómhentar heim af N1-vellinum á Hlíðarenda var mikil bjartsýni í herbúðum gestanna. Nýliðarnir veittu sterku liði Vals harða keppni og mættu ákveðnar til leiks.

Aðalbros
Aðalbros
Jöfnuðu fljótt en fengu á sig klaufamörk

Valur komst yfir strax á 15. mínútu með marki frá Arnfríði Auði Arnarsdóttur, en gestirnir létu það ekki á sig fá. Aðeins sex mínútum síðar jafnaði Sophia Faith Romine metin fyrir Grindavík/Njarðvík. Það var svo Ísabella Sara Tryggvadóttir sem skoraði sigurmark Vals á 66. mínútu.

Sigríður Emma, fyrirliði, var svekkt að ná ekki í stig en stolt af baráttunni:

„Við vorum ákveðnar, héldum trú á okkur allan tímann og hættum ekki að berjast. Ég hefði viljað öll þrjú stigin og við áttum alveg séns í það. Þetta voru bara klaufamörk hjá okkur.“

Undir lok leiksins fékk Maci Nicole Teater, leikmaður Grindavíkur/Njarðvíkur, rautt spjald, dómur sem fyrirliðinn var alls ekki sáttur við: „Mér finnst það ekki sanngjarnt og við áttum þetta ekki skilið.“

„Stjórnuðum leiknum á köflum“

Hin reynda Natasha Moraa Anasi, sem gekk í raðir liðsins fyrir tímabilið, var sömuleiðis ánægð með spilamennskuna þrátt fyrir úrslitin.

„Mér fannst við ná að stjórna leiknum og gera eins og við vildum. Það skipti engu máli hvort það var Valur eða eitthvað annað lið á móti okkur. Við spiluðum skemmtilegan fótbolta og ef við höldum svona áfram þá munu mörkin detta inn,“ sagði Natasha að leik loknum.

Hún tekur undir orð þjálfara liðsins um að frammistaða eins og sú í dag lofi mjög góðu fyrir framhaldið í sumar.

Valur - Grindavík/Njarðvík 1:0 / Besta deild kvenna / 25. apríl 2026

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir