Svakaleg endurkoma hjá Grindvíkingum
Þrjú mörk á sex mínútum
Grindvíkingar endurheimtu toppsætið í 1. deild karla í fótbolta með 4-2 sigri á Völsungi í dag á heimavelli sínum. Gestirnir voru 0-2 yfir í hálfleik en Grindvíkingar komu dýrvitlausir í seinni hálfleikinn og sneru leiknum sér í hag. Fyrst skoraði hinn ungi Daníel Leó Grétarsson en skömmu síðar komu þrjú mörk á sex mínútna kafla frá Grindvíkingum. Fyrst skoraði Denis Sytnik og í kjölfarið setti Stefán Þór Pálsson tvö mörk.