Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Sunneva stigahæst á SH mótinu í sundi
Sunneva Dögg Friðriksdóttir var stigahæst á mótinu.
Miðvikudagur 13. apríl 2016 kl. 17:43

Sunneva stigahæst á SH mótinu í sundi

ÍRB vann til flestra verðlauna

Suðurnesjafólk í ÍRB náði góðum árangri á Actavismóti SH í sundi um síðustu helgi. Sunneva Dögg Friðriksdóttir var stigahæst kvenna á mótinu og Eydís Ósk Kolbeinsdóttir var þar í öðru sæti.

Kristófer Sigurðsson var síðan í fimmta sæti í karlaflokki. Árangur stúlknanna var eftirtektarverður yfir heildina, en Sunneva Dögg var með besta afrek bæði karla og kvenna og Eydís Ósk var þar með þriðja besta árangurinn. Liðið ÍRB var með næst flest verðlaun á mótinu þrátt fyrir að keppa í fáum greinum. Aftur á móti vann sundfólkið til verðlauna í nánast öllum þeim greinum sem þau voru skráð í. Peningaverðlaun voru veitt fyrir besta árangur karla og kvenna samkvæmt alþjóðlegri stigatöflu.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024