Sunneva og Ægir íþróttafólk UMFN
Sundkonan Sunneva Dögg Robertson og júdókappinn Ægir Már Baldvinsson voru í gær útnefnd íþróttakona og íþróttamaður UMFN árið 2016. Þau eru vel að þessari viðurkenningu komin enda eiga þau bæði gott íþróttaár að baki.
Eftirtaldir einstaklingar voru svo útnefndir íþróttamenn deilda og fengu viðurkenningar fyrir.
Júdókona UMFN 2016 er Heiðrún Fjóla Pálsdóttir
Glímukona UMFN 2016 er Heiðrún Fjóla Pálsdóttir
Júdómaður UMFN 2016 er Ægir Már Baldvinsson
Glímumaður UMFN 2016 er Ægir Már Baldvinsson
Körfuknattleikskona UMFN 2016 er Björk Gunnarsdóttir
Körfuknattleiksmaður UMFN 2016 er Logi Gunnarsson
Knattspyrnumaður UMFN 2016 er Arnar Helgi Magnússon
Kraftlyftingarmaður UMFN 2016 er Halldór J. Vilhjálmsson
Kraftlyftingarkona UMFN 2016 er Inga María Henningsdóttir
Lyftingarkona UMFN 2016 er Katla Björk Ketilsdóttir
Lyftingarmaður UMFN 2016 er Emil Ragnar Ægisson
Sundkona UMFN 2016 er Sunneva Dögg Robertson
Þríþrautarkona UMFN 2016 er Guðlaug Sveinsdóttir
Þríþrautarmaður UMFN 2016 er Rafnkell Jónsson