Íþróttir

Sundmenn frá ÍRB skelltu sér í fossbað
Þriðjudagur 16. september 2014 kl. 12:55

Sundmenn frá ÍRB skelltu sér í fossbað

- í æfingabúðum á vegum Sundsambands Íslands.

Um síðustu helgi hélt SSÍ æfingabúðir fyrir efnilega unglinga. Þar tóku þátt 14 af þeim 15 unglingum ÍRB sem boðin var þátttaka. Það voru þau Klaudia Malesa, Bjarndís Sól Helenudóttir, Gunnhildur Björg Baldursdóttir, Svanfríður Árný Steingrímsdóttir, Sunneva Dögg Friðriksdóttir, Jóhanna Matthea Jóhannesdóttir, Eydís Ósk Kolbeinsdóttir, Stefanía Sigurþórsdóttir, Karen Mist Arngeirsdóttir, Rakel Ýr Ottósdóttir, Sylwia Sienkiewicz, Jóna Halla Egillsdóttir, Eiríkur Ingi Ólafsson and Ingi Þór Ólafsson. Þetta kemur fram á vefsíðu ÍRB. Aníka Mjöll Júlíusdóttir var einnig valin í hópinn en var erlendis ásamt fjölskyldu sinni.

Sundfólkið tók þátt í tveimur sundæfingum ásamt ýmsum öðrum æfingum eins og þreki, jóga, körfubolta og fótbolta. Krakkarnir fengu fyrirlestur frá Evu Hannesdóttur Ólympíufara. Þjálfararnir í æfingabúðunum voru þau Jacky Pellerin, Ragnheiður Runólfsdóttir og Mladen Tepacevic sögðu þeim einnig ýmislegt spennandi um Ólympíuleika og fleira gagnlegt úr reynslubanka sínum. Þau skelltu sér einnig í kalt bað í fossi og horfðu á bíómynd.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024


 
Hópurinn saman kominn. Að sögn þeirra var mjög gaman í æfingabúðunum og þetta var eitthvað sem þau myndu gjarnan vilja taka þátt í aftur.