Bygg
Bygg

Íþróttir

Sundfólk lætur gott af sér leiða
Laugardagur 8. október 2011 kl. 12:05

Sundfólk lætur gott af sér leiða

Ágóðinn af sundmaraþoninu sem þreytt var helgina 23.-25. september síðastliðinn rann óskiptur til sjómannsins Garðars Sigurðssonar sem greindist s.l. vor með góðkynja heilaæxli sem er staðsett við talstöðvar heilans. Hann hefur starfað við sjómennsku í mörg ár og er giftur þriggja barna faðir. Stofnaður var reikningur á hans nafni þar sem hægt er að leggja inn frjáls framlög.

Alls voru syntir 262,5 km og krakkarnir úr Sunddeild Grindavíkur og annað fólk sem kom að sundinu eiga hrós skilið.


Reikningsnúmerið er 0143-15-380555 kt. 220971-3179.

Fyrir hönd sunddeildar UMFG afhentu Brynjar Örn, Rósa Dís og Sindri, Garðari ágóðann af áheita sundmaraþoninu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

umfg.is