Bygg
Bygg

Íþróttir

Sumarið gert upp hjá Keflvíkingum
Fimmtudagur 13. september 2012 kl. 10:03

Sumarið gert upp hjá Keflvíkingum

Kvennalið Keflavíkur í knattspyrnu lék í B-riðli 1. deildar í sumar en það var þriðja sumarið í röð sem liðið leikur í næstefstu deild.  Keflvíkingar telfdu fram tiltölulega ungu liði í sumar sem var nær eingöngu skipað heimastúlkum. Engir erlendir leikmenn léku með liðinu eins og hjá fleiri félögum í riðlinum en mun færri útlendingar léku í deildinni en oft áður.  Liðið lauk keppni í neðri hluta riðilsins en síðustu tvö sumur komst liðið í úrslitakeppni 1. deildarinnar en tapaði í undanúrslitum.

Svo fór að Keflavík lauk keppni í 6. sæti riðilsins með 15 stig; vann þrjá leiki, gerði sex jafntefli og tapaði fimm leikjum.  Markatalan var 17-21.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Aðeins einn leikmaður tók þátt í öllum 14 leikjum liðsins í deildinni og það var við hæfi að það var fyrirliðinn Karitas Ingimarsdóttir.  Enda er Karitas langelsti og reyndasti leikmaður liðsins, orðin 27 ára gömul. Þegar tölurnar um fjölda leikja eru skoðaðar er rétt að hafa í huga að fyrirkomulagið í 1. deild kvenna er þannig að fimm leikmenn eru á bekknum í hverjum leik og þeir mega allir koma inn á.

Liðið skoraði 17 mörk í sumar og þar af var eitt sjálfsmark andstæðinga. Meðalskorið í leikjunum fjórtan var 1,2-1,5.  Keflavík gerði m.a. tvö markalaus jafntefli í sumar en alls voru gerð þrjú markalaus jafntefli í 56 leikjum í riðlinum.

Það voru ellefu leikmenn sem skoruðu þau 16 mörk sem liðið gerði í sumar.  Karitas Ingimarsdóttir og Fanney Þórunn Kristinsdóttir gerðu þrjú mörk hvor, Dagmar Þráinsdóttir gerði tvö og átta aðrar gerðu eitt mark hver.

Nánari tölfræði hjá Keflvíkingum má nálgast hér á heimasíðu félagsins.